Tunglið
fylgihnöttur jarðar / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tunglið[2] eða máninn[2] er eini fylgihnöttur jarðar. Meðalfjarlægð tungls og jarðar er 384.400 km og þvermál þess er 3.476 km. Það hefur bundinn möndulsnúning, þ.e. tunglið snýr alltaf sömu hlið að jörðinni.
Nánari upplýsingar Tunglið séð frá jörðu, Upplýsingar um tunglið ...
Tunglið séð frá jörðu (Mynd: Frode Steen) | |
---|---|
Upplýsingar um tunglið[1] | |
Meðalfjarlægð frá jörðu | 384.400 km |
Mesta fjarlægð frá jörðu | 405.500 km |
Minnsta fjarlægð frá jörðu | 363.300 km |
Brautarhraði | 1,2 km/s |
Tunglmánuður | 29,531 dagar |
Möndulhalli | 6,68° |
Þvermál | 3476 km |
Ummál | 10 921 km |
Flatarmál | 3,793 × 107 km2 (0,074 x Jörðin) |
Rúmtak | 2,1958 × 1010 km3 (0,020 x Jörðin) |
Eðlismassi | 3,34 g/cm³ |
Lausnarhraði | 2,4 km/s |
Þyngdarhröðun | 1,67 m/s² |
Meðalhiti dags | 130 °C |
Meðalhiti nætur | -180 °C |
Loka
Tunglið fer einn hring umhverfis jörðina á u. þ. b. einum mánuði og á hverri klukkustund færist það um 0,5° á himinhvelfingunni, miðað við fastastjörnunar, eða um fjarlægð sem er u.þ.b. jöfn sýndarþvermáli þess.
Tunglmyrkvi verður þegar tunglið fer inn í alskugga jarðar, þ. a jörðin skyggir á sólu frá tunglinu séð.