Íslenska
Norrænt mál sem er talað á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Íslenska er vesturnorrænt, germanskt og indóevrópskt tungumál sem er einkum talað og ritað á Íslandi og er móðurmál langflestra Íslendinga.[6] Það hefur tekið minni breytingum frá fornnorrænu en önnur norræn mál[6] og er skyldara norsku og færeysku en sænsku og dönsku.[3][4]
Íslenska | ||
---|---|---|
Málsvæði | Íslandi | |
Heimshluti | Norður-Evrópu | |
Fjöldi málhafa | um 373.000[1][2] | |
Ætt | Indóevrópsk[3][4] Germönsk Norðurgermönsk[4] Vesturnorrænt[4][5] Íslenska | |
Skrifletur | Íslenska stafrófið | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Ísland Norðurlandaráð | |
Stýrt af | Árnastofnun | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | is | |
ISO 639-2 | ice og isl | |
SIL | ICE | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Ólík mörgum öðrum vesturevrópskum tungumálum hefur íslenskan ítarlegt beygingarkerfi. Nafnorð og lýsingarorð eru beygð jafnt sem sagnir. Fjögur föll eru í íslensku, eins og í þýsku, en íslenskar nafnorðabeygingar eru flóknari en þær þýsku. Beygingarkerfið hefur ekki breyst mikið frá víkingaöld, þegar Norðmenn komu til Íslands með norræna tungumál sitt.
Meirihluti íslenskumælenda býr á Íslandi, eða um 300.000 manns.[7] Um 8.000 íslenskumælendur búa í Danmörku, en þar af eru 3.000 nemendur. Í Bandaríkjunum eru talendur málsins um 5.000, og í Kanada 1.400. Stærsti hópur kanadískra íslenskumælenda býr í Manitoba, sérstaklega í Gimli, þar sem Vestur-Íslendingar settust að. Þó að 97% Íslendinga telji íslensku móðurmál sitt er tungumálið nokkuð í rénun utan Íslands. Þeir sem tala íslensku utan Íslands eru oftast aðfluttir Íslendingar, nema í Gimli þar sem íslenskumælendur hafa búið frá 1880.
Árnastofnun sér um varðveislu málsins og hýsir miðaldahandrit sem skrifuð voru á Íslandi. Auk þess styður hún rannsóknir á málinu. Frá 1995 hefur verið haldið upp á dag íslenskrar tungu þann 16. nóvember á hverju ári, sem var fæðingardagur Jónas Hallgrímssonar skálds.