Suður-Súdan
land í Austur-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Suður-Súdan, formlega Lýðveldið Suður-Súdan,[1] er landlukt land í Austur- eða Mið-Afríku.[2][3] Það á landamæri að Eþíópíu í austri, Súdan í norðri, Mið-Afríkulýðveldinu í vestri, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í suðvestri, Úganda í suðri og Kenía í suðaustri. Íbúar eru rúmar 12 milljónir og þar af býr rúmlega hálf milljóni í höfuðborginni og stærstu borginni Júba.
Republic of South Sudan | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Justice, Liberty, Prosperity (enska) Réttlæti, frelsi, velmegun | |
Þjóðsöngur: South Sudan Oyee! | |
Höfuðborg | Júba |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Forsetaræði |
Forseti | Salva Kiir Mayardit |
Sjálfstæði | |
• frá Súdan | 9. júlí 2011 |
Flatarmál • Samtals |
45. sæti 644.329 km² |
Mannfjöldi • Samtals (2019) • Þéttleiki byggðar |
75. sæti 12.778.250 13,33/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 18,435 millj. dala (154. sæti) |
• Á mann | 1.420 dalir (222. sæti) |
VÞL (2019) | 0.433 (185. sæti) |
Gjaldmiðill | suðursúdanskt pund |
Tímabelti | UTC+2 |
Þjóðarlén | .ss |
Landsnúmer | +211 |
Suður-Súdan fékk sjálfstæði frá Súdan árið 2011. Landið var þannig yngsta fullvalda ríki heims sem nýtur almennrar alþjóðlegrar viðurkenningar árið 2021.[4] Landið nær yfir stórt fenjasvæði, Suddfenin, sem Hvíta Níl rennur um. Í Suður-Súdan heitir áin Bahr al Jabal sem merkir „Fjallafljót“.[5] Súdan var undir stjórn Egyptalands í valdatíð Muhammad Ali og var sameiginlegt yfirráðasvæði þar til Súdan fékk sjálfstæði árið 1956. Eftir Fyrsta súdanska borgarastríðið var Sjálfstjórnarhéraðið Suður-Súdan stofnað og stóð til 1983. Annað súdanska borgarastríðið braust út árið 1983 og því lauk árið 2005 með Alhliða friðarsamkomulaginu. Síðar sama ár fékk landið heimastjórn þegar Sjálfstæð ríkisstjórn Suður-Súdan var mynduð. Suður-Súdan fékk fullt sjálfstæði 9. júlí 2011, eftir að 98,83% íbúa höfðu kosið með sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu.[6][7] Fljótlega eftir að landið hlaut sjálfstæði hófust þjóðernisátök og borgarastríðið í Suður-Súdan braust út árið 2013. Stríðið einkenndist af mannréttindabrotum, þar á meðal þjóðernishreinsunum og morðum á blaðamönnum, framin af ýmsum stríðsaðilum. Stríðið stóð til 22. febrúar 2020 þegar Salva Kiir Mayardit og Riek Machar gerðu með sér samkomulag um samsteypustjórn,[8] sem gerði það að verkum að flóttafólk fær að snúa aftur heim.[9]
Íbúar Suður-Súdans eru flestir Nílótar og eru ein af yngstu þjóðum heims þar sem um helmingur er undir 18 ára aldri.[10] Meirihluti íbúa aðhyllist kristni eða ýmis afrísk trúarbrögð. Landið er aðili að Sameinuðu þjóðunum,[11][12] Afríkusambandinu,[13] Austur-Afríkusambandinu[14] Intergovernmental Authority on Development[15] og Genfarsáttmálanum.[16] Árið 2019 var Suður-Súdan í þriðja neðsta sæti í Hamingjuskýrslu Sameinuðu þjóðanna,[17] þriðja neðsta sæti á Friðarvísitölunni og er í fjórða efsta sæti á Vísitölu um brothætt ríki frá samtökunum Fund for Peace.[18]