Suðurnes
landshluti á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Suðurnes er samheiti þeirra byggðarlaga sem eru á Reykjanesskaga sunnan Hafnarfjarðar, eða sunnan Straums eins og Suðurnesjamenn segja oft. Þessi byggðarlög eru Vogar í samnefndu sveitarfélagi á Vatnsleysuströnd, Reykjanesbær (sem var myndaður 1994 úr Innri- og Ytri Njarðvík, Keflavík og Höfnum en sameining var felld í öðrum byggðarlögum), Suðurnesjabær (sem myndaður var 2018 úr Garði og Sandgerði) og Grindavík. Á þessu svæði er landnám Steinunnar gömlu, frændkonu Ingólfs, en henni gaf hann Rosmhvalanes allt sunnan Hvassahrauns, eins og Landnáma kemst að orði. Einnig landnám Molda-Gnúps, sem nam Grindavík. Annars er frásögn Landnámu um þetta svæði mjög óljós.