Transnistría
de facto sjálfstætt lýðveldi innan landamæra Moldóvu þar sem það hefur stöðu sjálfstjórnarhéraðs með sérstaka lagalega stöðu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Република Молдовеняскэ Нистрянэ Приднестро́вская Молда́вская Респу́блика Придністровська Молдавська Республіка | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Мы славим тебя, Приднестровье | |
Höfuðborg | Tíraspol |
Opinbert tungumál | rússneska, moldóvska, úkraínska |
Stjórnarfar | Forsetaþingræði |
Forseti | Vadim Krasnoselsky |
Forsætisráðherra | Aleksandr Martynov |
De facto sjálfstætt ríki | |
• Sjálfstæðisyfirlýsing | 2. september 1990 |
• Transnistríustríðið | 2. mars-21. júlí 1992 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
4.163 km² 2,35 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
469.000 114/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2007 |
• Samtals | 0,799 millj. dala |
• Á mann | 1500 dalir |
Gjaldmiðill | transnistrísk rúbla |
Tímabelti | UTC+2 (+3) |
Þjóðarlén | .* |
Landsnúmer | +373 |
Transnistría er yfirlýst lýðveldi á svæði sem almennt er viðurkennt sem hluti af Moldóvu. Eftir hrun Sovétríkjanna lýsti Transnistría yfir sjálfstæði sem leiddi til styrjaldar við stjórn Moldóvu sem hófst í mars 1992 og lauk með vopnahléi í júlí sama ár. Átökin stöfuðu af andstöðu við þjóðernissinnaða stjórn hinnar nýfrjálsu Moldóvu og aðgerðir hennar gegn slavneskumælandi minnihlutahópum í landinu. Þótt vopnahléið hafi haldið er lagaleg staða svæðisins enn óútkljáð.
Transnistría er á mjórri landræmu milli árinnar Dnjestr og landamæra Úkraínu í austri. Landið nær líka yfir borgina Bender á vesturbakka árinnar. Nafn landsins merkir „handan Dnjestr“. Höfuðstaður Transnistríu er Tíraspol.
Transnistría er oft nefnd ásamt Nagornó-Karabak, Abkasíu og Suður-Ossetíu sem dæmi um frosin átök innan fyrrum Sovétlýðvelda. Ekkert þessara ríkja á aðild að Sameinuðu þjóðunum en þau hafa formlega viðurkennt sjálfstæði hvers annars. Rússneskar herdeildir hafa verið í Transnistríu frá því á Sovéttímanum og því lítur Evrópusambandið svo á að landið sé í raun undir yfirráðum eða í það minnsta undir miklum áhrifum frá Rússlandi.