Bill Anders
From Wikipedia, the free encyclopedia
William "Bill" Alison Anders (fæddur 17. október 1933) er fyrrverandi bandarískur geimfari og síðar sendiherra. Hann var tunglferjuflugmaður í þriggja manna áhöfn Apollo 8 leiðangursins árið 1968, ásamt Frank Borman og Jim Lovell. Þeir þrír voru fyrstir til að yfirgefa sporbraut Jarðar, fljúga til og fara á sporbraut um Tunglið. Þeir voru einnig fyrstir til að sjá bakhlið tunglsins. Á braut um Tunglið tók Bill hina frægu ljósmynd „Jarðarupprás“. Galen Rowell hjá National Geographic tímaritinu hefur kallað myndina þá áhrifamestu sem tekin hefur verið af jörðinni.[1] Auk þess varð Bill fyrstur manna til að taka mynd af jörðinni í heild sinni, en menn höfðu þá aldrei ferðast jafn langt frá jörðinni.[2] Bill var í varaáhöfn Apollo 11 leiðangursins árið 1969. Hann er einn af aðeins 24 einstaklingum sem flogið hafa til tunglsins.[3]
William Alison Anders | |
Bill Anders á Íslandi árið 2013. | |
Fæddur | 17. október 1933(1933-10-17) Hong Kong |
---|---|
Tími í geimnum | 6 dagar, 3 klukkustundir, 0 mínútur og 42 sekúndur |
Verkefni | Apollo 8 |