Eygló Harðardóttir (stjórnmálamaður)
íslenskur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Eygló Þóra Harðardóttir (fædd 12. desember 1972 í Reykjavík) er íslenskur fyrrum þingmaður og fyrrum félags- og húsnæðismálaráðherra.[1] Eygló bauð sig fyrst fram til Alþingis árið 2007 og var varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi þar til Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku. Í janúar 2009 var hún kjörin ritari flokksins og hefur gegnt þeirri stöðu síðan og skipaði hún annað sæti á lista flokksins í þingkosningunum 2009. Árið 2013 varð hún oddviti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi og var í kjölfar þingkosninga skipuð félags- og húsnæðismálaráðherra í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Staðreyndir strax Fæðingardagur:, Fæðingarstaður: ...
Eygló Harðardóttir (EyH) | |
Fæðingardagur: | 12. desember 1972 (1972-12-12) (51 árs) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
2. þingmaður Suðvesturkjördæmi | |
Flokkur: | Framsóknarflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
2008-2013 | í Suðurk. fyrir Framsfl. |
2013-2017 | í Suðvest. fyrir Framsfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2013-2017 | Félags- og húsnæðismálaráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Loka