Hermann Jónasson
Íslenskur stjórnmálamaður (f. 1896) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hermann Jónasson (fæddur 25. desember 1896, látinn 22. janúar 1976) var leiðtogi Framsóknarflokksins stóran hluta 20. aldar og þar með einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum aldarinnar. Hann sat á Alþingi í yfir þrjátíu ár og gegndi embættum forsætis- dóms- og landbúnaðarráðherra í ýmsum ríkisstjórnum. Hann var þar að auki lögreglustjóri í Reykjavík 1929 - 1934. Auk þess má nefna að Hermann var glímukóngur Íslands árið 1921.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Íslands, Þjóðhöfðingi ...
Hermann Jónasson | |
---|---|
Forsætisráðherra Íslands | |
Í embætti 28. júlí 1934 – 16. maí 1942 | |
Þjóðhöfðingi | Kristján 10. |
Forveri | Ásgeir Ásgeirsson |
Eftirmaður | Ólafur Thors |
Í embætti 24. júlí 1956 – 23. desember 1958 | |
Forseti | Ásgeir Ásgeirsson |
Forveri | Ólafur Thors |
Eftirmaður | Emil Jónsson |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. desember 1896 Syðri-Brekkum, Skagafirði, Íslandi |
Látinn | 22. janúar 1976 (79 ára) Reykjavík, Íslandi |
Stjórnmálaflokkur | Framsóknarflokkurinn |
Maki | Vigdís Oddný Steingrímsdóttir |
Börn | Herdís, Steingrímur, Pálína, Lúðvík |
Foreldrar | Jónas Jónsson og Pálína Guðný Björnsdóttir |
Háskóli | Háskóli Íslands |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Loka