Iceland Express
íslenskt lággjaldaflugfélag og ferðaskrifstofa (2003-2012) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Iceland Express var íslenskt lággjaldaflugfélag og ferðaskrifstofa sem var í eigu Fengs eignarhaldsfélags en var tekið yfir af WOW air í október 2012.
Iceland Express | |
Rekstrarform | ferðaskrifstofa |
---|---|
Slagorð | Með ánægju! |
Stofnað | 2002 |
Örlög | Sameinað WOW air árið 2012 |
Staðsetning | Grímsbæ, Efstalandi 26, Reykjavík |
Lykilpersónur | Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri |
Starfsemi | Skipulag áætlunarflugs |
Vefsíða | http://www.icelandexpress.is, http://www.icelandexpress.com |
Fyrirtækið fékk ferðaskrifstofuleyfi á Íslandi frá samgönguráðherra þann 17. desember 2002 og hóf í kjölfar þess starfsemi árið 2003. Árið 2005 festu eigendur Iceland Express kaup á dönsku flugfélögunum Sterling og Maersk Air. Eftir að hafa sameinað þau í eitt seldu þeir FL Group fyrirtækin og fengu í skiptum hlutabréf í FL Group.
23. október 2012 yfirtók fyrirtækið WOW air Iceland Express. Við yfirtökuna tók félagið yfir leiðarkerfi, vörumerki og viðskiptavild.[1] 30. október sama ár sagði svo WOW air öllum starfsmönnum Iceland Express upp störfum ásamt því að rifta samningum við flugrekanda Iceland Express, Holidays Czech Airlines.[2]