Kim Petras
þýsk söngkona / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kim Petras (f. 27. ágúst 1992) er þýsk söngkona og lagahöfundur. Áður en hún skrifaði undir hjá Amigo og Republic Records, gaf hún út tónlist undir sinni eigin útgáfu, BunHead Records.[2]
Kim Petras | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | 27. ágúst 1992 (1992-08-27) (31 árs) Köln, Norðurrín-Vestfalía, Þýskaland |
Störf |
|
Ár virk | 2008–í dag |
Stefnur |
|
Útgefandi | |
Meðlimur í | K/DA |
Vefsíða | kimpetras |
Petras byrjaði að taka upp tónlist sem unglingur. Á árunum 2017 til 2019 gaf hún út nokkrar smáskífur, þar með talið „I Dont Want It at All“, „Heart to Break“ og „1, 2, 3 Dayz Up“. Nokkrar þeirra komust á Dance/Electronic Songs listann hjá Billboard. Árið 2019 gaf hún út blandspólurnar Clarity og Turn Off the Light.
Petras skrifaði undir hjá Republic Records árið 2021 og gaf út stuttskífuna Slut Pop árið eftir. Petras kom fram á smáskífunni „Unholy“ með Sam Smith sem komst á topp margra vinsældalista, þar með talið UK Singles Chart og Billboard Hot 100, sem gerði hana að fyrstu trans konunni til að ná fyrsta sæti í Bandaríkjunum.[3][4] Hún var fyrsta trans konan til að fá Grammy-verðlaun fyrir besta popp flutning tvíeykis/hóps (Best Pop Duo/Group Performance) fyrir „Unholy“ árið 2023, og önnur trans manneskjan yfir höfuð til að vinna Grammy-verðlaun, eftir Wendy Carlos.[4][5][6]