Laugardalshöll
íþrótta- og viðburðarhús í Reykjavík / From Wikipedia, the free encyclopedia
Laugardalshöll er um 6.500 m² íþrótta-, tónleika-, sýningar- og ráðstefnuhöll í Laugardalnum í Reykjavík. Laugardalshöll var lengi vel stærsta íþrótta- og tónleikahús landsins og hefur í gegnum tíðina hýst ýmsa stórviðburði eins og tónleika Led Zeppelin 1970, skákeinvígi Fischers og Spasskíjs 1972 og Heimsmeistaramótið í handbolta 1995. Í Laugardalshöll hafa auk þess oft verið haldnar stórar vörusýningar, svo sem heimilissýningarnar og atvinnuvegasýningar af ýmsu tagi.