Mahmúd Abbas
Forseti Palestínu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mahmúd Abbas (arabíska: محمود عباس) (f. 15. nóvember 1935[1][2]), einnig þekktur undir nafninu Kunya Abu Mazen (arabíska: ابو مازن), er palestínskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti palestínsku heimastjórnarinnar frá árinu 2005.[2]
Mahmúd Abbas مَحْمُود عَبَّاس | |
---|---|
Forseti palestínsku heimastjórnarinnar | |
Núverandi | |
Tók við embætti 15. janúar 2005 | |
Forsætisráðherra | Ahmed Qurei Nabil Shaath (starfandi) Ahmed Qurei Ismail Haniyeh Salam Fayyad Rami Hamdallah Mohammad Shtayyeh |
Forveri | Yasser Arafat |
Forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar | |
Í embætti 19. mars 2003 – 6. september 2003 | |
Forseti | Yasser Arafat |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Ahmed Qurei |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. nóvember 1935 (1935-11-15) (88 ára) Safed, Palestínu |
Stjórnmálaflokkur | Fatah |
Maki | Amina Abbas |
Börn | 3 |
Bústaður | Ramallah, Vesturbakkanum |
Háskóli | Háskólinn í Damaskus Alþýðuvináttuháskóli Rússlands |
Abbas er einn af leiðtogum stjórnmálahreyfingarinnar Fatah. Hann var áður fyrsti forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar frá mars til október árið 2003. Hann sagði af sér vegna skorts á stuðningi Ísraela og Bandaríkjamanna og „innlendrar egningar“ gegn stjórn hans. Áður fór Abbas fyrir samningadeild Frelsissamtaka Palestínu (PLO). Hann hefur verið formaður framkvæmdastjórnar PLO frá 11. nóvember 2004, eftir að Yasser Arafat lést. Abbas er talinn meðal hófsamari leiðtoga Palestínu af Ísraelum og Bandaríkjamönnum.