Mary McAleese
8. forseti Írlands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mary Patricia McAleese (f. 27. júní 1951) er írskur stjórnmálamaður sem var forseti Írlands frá 1997 til 2011. Hún var önnur konan til að gegna embætti forseta landsins á eftir forvera sínum, Mary Robinson. McAleese var fyrsti kvenforseti sögunnar sem tók við embætti af annarri konu.[1] McAleese vann forsetakosningar Írlands árið 1997 og var sjálfkjörin til annars kjörtímabils árið 2004. Í bæði skiptin var hún formlega óflokksbundinn frambjóðandi, en hún hafði áður verið meðlimur í hægriflokknum Fianna Fáil. McAleese er fyrsti forseti Írlands sem hefur komið frá Norður-Írlandi eða frá Ulster.[2]
Staðreyndir strax Forseti Írlands, Forsætisráðherra ...
Mary McAleese | |
---|---|
Forseti Írlands | |
Í embætti 12. september 1997 – 10. nóvember 2011 | |
Forsætisráðherra | Bertie Ahern Brian Cowen Enda Kenny |
Forveri | Mary Robinson |
Eftirmaður | Michael D. Higgins |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 27. júní 1951 (1951-06-27) (72 ára) Belfast, Norður-Írlandi |
Þjóðerni | Írsk |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundin (frá 1997) Fianna Fáil (fyrir 1997) |
Maki | Martin McAleese (g. 1976) |
Trúarbrögð | Kaþólsk |
Börn | 3 |
Háskóli | Drottningarháskólinn í Belfast Trinity-háskólinn í Dyflinni |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður, blaðamaður |
Undirskrift |
Loka