Sameinuðu arabísku furstadæmin
ríki í Mið-Austurlöndum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sameinuðu arabísku furstadæmin eru sambandsríki sjö furstadæma á suðausturhorni Arabíuskagans. Furstadæmin eru Abú Dabí, Adsman, Dúbæ, Fúdsaíra, Ras al-Kaíma, Sjarja og Úmm al-Kúvaín. Þau eiga landamæri að Sádí-Arabíu og Óman og strönd að Persaflóa. Sameinuðu arabísku furstadæmin eru þriðji stærsti olíuframleiðandinn við Persaflóa, á eftir Íran og Sádí-Arabíu.
Sameinuðu arabísku furstadæmin | |
الإمارات العربيّة المتّحدة Al-Imārāt al-‘Arabīyah al-Muttahidah | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Ishy Bilady | |
Höfuðborg | Abú Dabí |
Opinbert tungumál | arabíska |
Stjórnarfar | Sambandsríki |
Forseti | Mohamed bin Zayed Al Nahyan |
Forsætisráðherra | Mohammed bin Rashid Al Maktoum |
Sjálfstæði | frá Bretlandi |
• Yfirlýst | 2. desember 1971 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
114. sæti 83.600 km² 0 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
92. sæti 9.890.400 99/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 647,65 millj. dala (34. sæti) |
• Á mann | 70.441 dalir (7. sæti) |
VÞL (2019) | 0.890 (31. sæti) |
Gjaldmiðill | SAF-díram (AED) |
Tímabelti | UTC+4 |
Þjóðarlén | .ae |
Landsnúmer | +971 |
Ríkið var stofnað árin 1971 og 1972 af Sáttastrandarríkjunum sjö sem áður voru undir vernd Bretlands. Yfir hverju furstadæmanna sjö ríkir emír. Emírarnir koma saman í sambandsráðinu sem er æðsti löggjafi og framkvæmdavald landsins. Einn af emírunum er skipaður forseti af ráðinu. Höfuðborgin er Abú Dabí en Dúbæ er fjölmennasta borgin. Arabíska er opinbert tungumál landsins og íslam opinber trúarbrögð. Íbúar eru um níu milljónir en voru innan við 100.000 árið 1963. Stór hluti íbúa eru farandverkafólk og í landinu búa 2,2 karlmenn á móti hverri konu. Verkalýðsfélög eru bönnuð og verkfallsréttur ekki viðurkenndur.
Olíulindir fundust í landinu á 6. áratug 20. aldar og útflutningur hráolíu hófst frá Abú Dabí árið 1962. Olía og tengdar afurðir eru langstærsta útflutningsgrein landsins. Olíubirgðir Sameinuðu arabísku furstadæmanna eru taldar vera þær sjöundu mestu í heimi. Fyrsti forseti landsins, Zayed bin Sultan Al Nahyan, sá til þess að olíuauðnum var varið til að byggja upp innviði, heilbrigðisþjónustu og menntun. Sameinuðu arabísku furstadæmin eru hátekjuland með tiltölulega háa lífsgæðavísitölu. Efnahagslíf furstadæmanna er það fjölbreyttasta meðal ríkja innan Persaflóasamstarfsráðsins. Fjölmennasta borgin, Dúbaí, er alþjóðleg miðstöð fyrir flugsamgöngur og alþjóðaviðskipti. Landið reiðir sig því mun síður á olíu en áður og áhersla hefur verið lögð á að byggja upp ferðaþjónustu og viðskipti. Tekjuskattur er ekki innheimtur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en þar eru fyrirtækjaskattar og virðisaukaskattur upp á 5% var lagður á árið 2018.
Sameinuðu arabísku furstadæmin eru miðveldi í sínum heimshluta. Landið er aðili að Sameinuðu þjóðunum, Arababandalaginu, Samtökum um íslamska samvinnu, Samtökum olíuframleiðsluríkja, Samtökum hlutlausra ríkja og Persaflóasamstarfsráðinu.