Sádi-Arabía
ríki í Mið-Austurlöndum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sádi-Arabía (arabíska: السعودية as-Saʿūdīyah) er konungsríki í Vestur-Asíu sem nær yfir stærstan hluta Arabíuskagans. Landið er um það bil 2.150.000 km² að stærð, stærsta ríki Mið-Austurlanda, annað stærsta Arabaríkið (á eftir Alsír), fimmta stærsta land Asíu og það tólfta stærsta í heimi. Sádi-Arabía á landamæri að Írak, Jórdaníu, Kúveit, Óman, Katar, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Jemen. Akabaflói skilur milli Sádi-Arabíu og Ísraels og Egyptalands. Sádi-Arabía er eina ríkið með strönd að bæði Persaflóa og Rauðahafi. Stærstur hluti af landi Sádi-Arabíu er eyðimörk. Í október 2018 var hagkerfi Sádi-Arabíu það stærsta í Mið-Austurlöndum og það 18. stærsta í heimi. Íbúar voru taldir vera um 33 milljónir árið 2018 og eru með þeim yngstu í heimi þar sem helmingur er undir 25 ára aldri.
Konungsríkið Sádi-Arabía | |
المملكة العربية السعودية al-Mamlakah al-ʿArabīyah as-Saʿūdīyah | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Það er enginn guð nema Guð; Múhameð er spámaður Guðs (trúarjátning múslima) | |
Þjóðsöngur: an-Našīd al-Waṭanī as-Saʻūdī | |
Höfuðborg | Ríad |
Opinbert tungumál | arabíska |
Stjórnarfar | Konungsríki |
Konungur | Salman bin Abdul Aziz al-Sád |
Forsætisráðherra | Múhameð bin Salman |
Sameining | |
• Stofnun | 23. september 1932 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
15. sæti 2.149.690 km² 0,7 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
40. sæti 33.000.000 14/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 1.924 millj. dala (14. sæti) |
• Á mann | 56.817 dalir (12. sæti) |
VÞL (2017) | 0.853 (38. sæti) |
Gjaldmiðill | sádiarabískt ríal (SAR) |
Tímabelti | UTC+3 |
Þjóðarlén | .sa |
Landsnúmer | +966 |
Þar sem Sádi-Arabía er nú hafa risið nokkur forn menningarríki. Þar hafa fundist einhver elstu merki um menn í heimi. Önnur útbreiddustu trúarbrögð heims, íslam, urðu til þar sem Sádi-Arabía stendur. Snemma á 7. öld hóf Múhameð spámaður að sameina ættbálka Arabíu í eitt trúfélag. Eftir lát hans 632 tóku fylgjendur hans til við að stækka yfirráðasvæði múslima út fyrir Arabíuskagann og lögðu undir sig gríðarstórt landsvæði sem náði frá Íberíuskaganum í vestri til þess sem í dag er Pakistan í austri á nokkrum áratugum. Í Sádi-Arabíu komu upp kalífadæmin fjögur, Rasídúnar (632-661), Úmajadar (661-750), Abbasídar (750-1517) og Fatímídar (909-1171) auk fjölda annarra konungsætta sem ríktu yfir hlutum Asíu, Afríku og Evrópu.
Þar sem Sádi-Arabía er nú voru lengst af fjögur héruð, Hejaz, Najd og hlutar Austur-Arabíu (Al-Ahsa) og Suður-Arabíu ('Asir). Konungsríkið Sádi-Arabía var stofnað árið 1932 af Abdul-Aziz bin Sád (sem er betur þekktur sem Ibn Sád á Vesturlöndum). Hann sameinaði héruðin fjögur í eitt ríki með röð landvinninga frá því hann lagði Ríad undir sig árið 1902. Síðan þá hefur Sád-ætt farið með alræðisvald í konungsríkinu sem er ættarveldi skipulagt samkvæmt íslömskum lögum. Hinn íhaldssami wahhabismi er ríkjandi útgáfa súnní íslam í Sádi-Arabíu og hefur verið kallaður „helsta einkenni menningar Sádi-Arabíu“. Útbreiðsla wahhabisma um hinn íslamska heim hefur verið drifin áfram af tekjum af olíu- og gasvinnslu í Sádi-Arabíu. Sádi-Arabía er stundum nefnt „land hinna tveggja heilögu moskna“ og er þá átt við moskurnar Al-Masjid al-Haram í Mekka og Al-Masjid an-Nabawi í Medina, sem eru tveir helgustu staðir íslam. Arabíska er opinbert tungumál ríkisins.
Hráolía uppgötvaðist í landinu 3. mars 1938 og síðan þá hefur Sádi-Arabía verið annar mesti olíuframleiðandi í heimi (á eftir Bandaríkjunum) og mesti olíuútflytjandi heims. Landið ræður yfir stærstu olíubirgðum og sjöttu stærstu gasbirgðum heims. Um 90% af útflutningi Sádi-Arabíu er olía og tekjur af sölu olíu eru um 75% af landsframleiðslu. Ghawar er talin vera stærsta olíulind heimsins, áætlað er að um ¼ af þeirri olíu sem notuð er í dag komi þaðan. Heimsbankinn flokkar landið sem hátekjuland með háa vísitölu um þróun lífsgæða. Landið er eina Arabaríkið sem er eitt af 20 helstu iðnríkjum heims. Stjórnvöld þar hafa meðal annars sætt gagnrýni fyrir réttleysi kvenna, óhóflega notkun dauðarefsinga, ofsóknir á hendur trúarlegum minnihlutahópum og trúleysingjum, hlutverk sitt í borgarastyrjöldinni í Jemen, stuðning við íslamska öfgamenn og stranga beitingu sjaríalaga. Sádi-Arabía er í þriðja sæti yfir lönd eftir eyðslu til hermála og, samkvæmt Stockholm International Peace Research Institute, annar stærsti vopnakaupandi heims frá 2010 til 2014. Sádi-Arabía er stórveldi í sínum heimshluta. Það er forysturíki í Persaflóasamstarfsráðinu og OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja.