Sýrurokk
tónlistarstefna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sýrurokk (e. psychedelic rock, einnig sækadelía) er tónlistarstefna sem kom fram um miðjan sjöunda áratug tuttugustu aldar.[1] Ekki má rugla sýrurokki við ensku stefnuna acid rock sem var ein af undirstefnum sýrurokks[2]. Nátengdar stefnur eru sýrupopp, sýrufólktónlist og sýrusálartónlist. Tónlistin átti að líkja eftir áhrifum ofskynjunarlyfja og virkaði sem einhversskonar þematónlist svokallaðra dóp 'trippa' og hippamenningarinnar. Mikið var notast við alls kyns rafmagnseffekta og nýstárlega upptökutækni auk þess sem tónlistin sótti áhrif í djass og austurlenska tónlist. Rafmagnsgítar og hljómborð eða hljóðgervlar af ýmsu tagi voru áberandi einkenni þessarar tónlistarstefnu.
Sýrurokk | |
---|---|
Uppruni | Seinni hluti sjöunda áratugarins í Bretlandi & Bandaríkjunum |
Hljóðfæri | Rafmagnsgítar – Bassi – Trommur – Rafmagnsorgel – Sítar - Mellotron - Hljóðgervill |
Vinsældir | Seinni hluti 7. áratugarins - byrjun 8. áratugarins, endurvakning sem nýsýrurokk í lok 8. áratugarins. |
Tengdar stefnur | |
Sýrupopp – Nýsýrurokk - Djass - Rokk - Sýrufólktónlist |
Sýrurokk var ákaflega vinsælt í bæði Bretlandi og Bandaríkjunum en einhver munur var á stefnunum sitthvoru megin við Atlantshafið. Þekktar hljómsveitir sem spiluðu einhverntíma svona tónlist eru meðal annars Bítlarnir,[3] The Rolling Stones,[4] Pink Floyd,[5] og Soft Machine.[6] Þrátt fyrir að sýrurokksenan hafið verið mest áberandi í Bretlandi og Bandaríkjunum náði hún líka til Íslands og hafði áhrif á tónlistarlífið hér.
Sýrurokk lifði stutt og fjaraði að mestu út á mótum sjöunda og áttunda áratugarins og flestar sýrurokksveitir sneru sér að öðrum stefnum. Það var svo í lok áttunda áratugarins sem síðpönk sveitir tóku að tvinna sækadelíu saman við tónlist sína og þar með hófts nýsækadelía sem er enn við lýði í dag.