Valdimar gamli
Stórfursti af Kænugarði / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þessi grein fjallar um furstann í Garðaríki. Sjá Valdimar sigursæli fyrir greinina um Danakonunginn
Valdimar gamli,[3] Volodymyr eða Vladímír Svjatoslavítsj (fornausturslavneska: Володимѣръ Свѧтославичь) var stórfursti (einnig kallaður konungur eða knjas) í Kænugarði og Hólmgarði í því sem norrænir menn kölluðu Garðaríki á 10. og 11. öld.
Staðreyndir strax
| ||||
Valdimar gamli | ||||
Ríkisár | 11. júní 980 – 15. júlí 1015 (í Kænugarði) 969 – u. þ. b. 977 (í Hólmgarði) | |||
Skírnarnafn | Volodymyr Svjatoslavytsj | |||
Fæddur | Í kringum 958 | |||
Búdník nálægt Pskov (núverandi Pskov Oblast)[1] eða Búdjatytsjí (í núverandi Volyn Oblast)[2] | ||||
Dáinn | 15. júlí 1015 | |||
Berestovo, Garðaríki (nú í Kænugarði) | ||||
Gröf | Tíundarkirkjan í Kænugarði | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Svjatoslav 1. | |||
Móðir | Malúsja | |||
Eiginkona | Allogia Ragnheiður af Palteskju Adela Málfríður Anna Porfyrogenita | |||
Börn | Izjaslav, Jarisleifur, Mstislav, Boris, Gleb, Súdislav, María Dobronjega |
Loka
Valdimari er talið til tekna að hafa kristnað Rús-þjóðirnar í Garðaríki undir lok 10. aldar. Hann er því heiðraður sem dýrlingur innan deilda rétttrúnaðarkirkjunnar í Rússlandi og Úkraínu og er gjarnan kallaður Valdimar helgi eða Valdimar mikli.