Willard Van Orman Quine
From Wikipedia, the free encyclopedia
Willard Van Orman Quine (25. júní 1908 – 25. desember 2000) var einn áhrifamesti heimspekingur og rökfræðingur Bandaríkjanna á 20. öld.
Staðreyndir strax Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar, Nafn: ...
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Willard Van Orman Quine |
Fæddur: | 25. júní 1908 |
Látinn: | 25. desember 2000 (92 ára) |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki, raunhyggja |
Helstu ritverk: | Elementary Logic, Methods of Logic, From a Logical Point of View, Word & Object, Ways of Paradox and Other Essays, Quiddities, Theories and Things, Pursuit of Truth, The Web of Belief, Ontological Relativity and Other Essays |
Helstu viðfangsefni: | rökfræði, vísindaheimspeki, þekkingarfræði, frumspeki |
Markverðar hugmyndir: | nafnhyggja, verufræðileg afstæðishyggja, heildarhyggja, náttúruhyggja, þýðingabrigði, úrdráttarhyggja um sannleikann, afvitnunarhyggja |
Áhrifavaldar: | David Hume, Alfred North Whitehead, Vínarhringurinn, Rudolf Carnap, Nelson Goodman |
Hafði áhrif á: | Nelson Goodman, Donald Davidson, Dagfinn Föllesdal, Daniel Dennett, |
Loka
Quine var stundum nefndur „heimspekingur meðal heimspekinga“. Hann tilheyrði þeirri hefð innan heimspekinnar sem nefnist rökgreiningarheimspeki, en hélt því þó einnig fram að heimspeki væri ekki hugtakagreining. Hann var Edgar Peirce prófessor í heimspeki við Harvard University frá árinu 1956 til æviloka árið 2000. Quine er meðal áhrifamestu heimspekinga á síðari hluta 20. aldar og er meðal þekktustu heimspekinga í sögu bandarískrar heimspeki.